Blogg Flokkar
Leiðbeiningar fyrir 123.is notendur :
Hérna koma leiðbeiningar hvernig eigi að búa til blogg flokka. - Leiðbeiningar með myndum eru væntanlegar -
Þeir virka þannig að þú skrifar blogg og hakar svo við í þann blogg flokk sem við á.
Hér eru leiðbeiningar :
1. Ferð inn í Vefstjórnina fyrir 123.is síðuna þína. Dæmi : http://nafnásíðu.123.is/admin/
2. Veldu svo "Flokkar" ( "Blog - Flokkar - Athugasemdir Sjálfvirkar vistanir")
3. Skrifaðu heitið á bloggflokknum (t.d. Upplýsingablogg) og ýttu á "Stofna nýjan blogg flokk"
Búðu svo til annan blogg flokk (t.d. Atburðir) og ýttu á "Stofna nýjan blogg flokk"
4. Ýttu svo á "VEFURINN MINN" og þar fyrir neðan "Síðuhlutir (widgets)"
5. Ýttu svo á gráa hnappinn "Blogg" ("Vinsælt - Blogg - Gögn" og dragðu svo hlutinn "Blogg flokkar" á þann stað sem þér hentar (t.d í græna svæðið "Fyrir ofan efni síðu".
Núna á að vera komið á síðuna bloggflokkar. (birtist aðeins á blogg hluta síðu)
Eftir það þá geturðu skrifað bloggfærslu og hakað við í þann bloggflokk sem þú vilt.
t.d. ef færslan varðar einhvern íþrótta viðburð þá hakarðu við í "Atburðir" og svo framvegis.
Ef þú ýtir á bloggflokk þá sjást aðeins þær færslur sem þú hefur hakað við.
Vonandi hjálpar þetta :)