Bæta við myndum
Leiðbeiningar fyrir 123.is notendur :
Sjá einnig útskýringar með myndum hér fyrir neðan.
Til eru 2 leiðir til að setja inn myndir á síðuna þína.
LEIÐ 1 :
1. Ferð inn í vefstjórnina fyrir 123.is síðuna þína. Dæmi : http://nafnásíðu.123.is/admin/
2. Velur "Bæta við myndum" vinstra megin í stjórnkerfinu.
3. Velur svo hvað albúmið á að heita undir "Titill" í hvíta rammanum sem kemur upp.
4. Velur svo "Velja myndir" hnappinn þar fyrir neðan.
5. Velur svo hvaða myndir þú vilt setja inn á síðuna þína af tölvunni þinni.
6. Svo hlaðast myndirnar upp á síðuna þína.
7. Og þegar allar myndirnar eru búnar að hlaðast upp ferðu sjálfkrafa inn á myndaalbúmið sem þú stofnaðir, þar sem þú getur breytt "Umfjöllun" um myndirnar, stillingar á albúminu og þess háttar.
Núna ættu Myndirnar að vera komnar inn á síðuna þína.
LEIÐ 2 :
Það er líka hægt að bæta myndum inn á síðuna með sérstöku "Netalbúm" forriti frá 123.is.
Leiðbeiningar eru væntanlegar.
Leiðbeiningar með myndum : LEIÐ 1 :
- Mynd 1 - Mynd 2 - Mynd 3-4 - Mynd 5 - Mynd 6
Leiðbeiningar með myndum : LEIÐ 2 :
Mynda Leiðbeiningar eru væntanlegar.