Gestabók
25.9.2013 kl. 22:43
Gestabók
Sæll Óðinn Snær. Hvernig virkja ég Gestabókina. Er með annað blogg og þar var þetta ekkert mál en á þessu nýja virkar ekki Gestabókin! Bestu kveðjur Margrét
Margrét
30.4.2013 kl. 14:47
Tvöfalt blogg
Góðann daginn,
Er hægt að vera með tvo blogg flipa á sömu síðunni.
Það sem að ég er að velta fyrir mér er að vera með venjulega upplýsinga bloggið fyrir iðkendur og þjálfara og svo að vera með sér flipa sem væri upplýsinga og blogg tengt ákveðnum árlegum atburðum, svo sem fótboltamótin.
Kv.
B.A.
Björn Anton
22.6.2012 kl. 22:07
Hausmynd
Sæll Óðinn.
Hvernig get ég sett html-efni í hausmyndar-dálkinn ?
Ef ég vil td setja flash-efni í hausmyndardálkinn (embed)
Nota mikið embed-efni í hinu ýmsu html-box sem ég er búinn að setja inn á 641.is og var að spá hvort það sé hægt að gera það líka í hausmyndardálkinn.
kv Hermann
Hermann Aðalsteinsson