09.03.2012 00:04
- Láta texta rúlla fram og til baka
Leiðbeiningar fyrir 123.is notendur :
Hægt er að láta texta rúlla fram og til baka, í titlinum á síðunni og líka í Undirsíðum, Blogginu og HTML aukahlutinum.
Hér er útskýrt hvernig eigi að fara að í Undirsíðum.
Sjá einnig útskýringar með myndum hér fyrir neðan.
1. Afritar eitthvað af eftirtöldum textum :
Til að láta Texta rúlla allan hringinn :
<font color=black> <font size=4> <marquee>Hér skrifar þú textann sem á að hreyfast</marquee>
Til að láta Texta rúlla fram og til baka :
GRÆNN Litur = Textinn sem á að hreyfast
RAUÐUR Litur = Leturstærðin á textanum (1-9)
BLÁR Litur = Liturinn á Textanum (á ensku) (Yellow-Red-Green og svo f.r.v)
2. Ferð inn í vefstjórnina fyrir 123.is síðuna þína. Dæmi : http://nafnásíðu.123.is/admin/
3. Velur "VEFURINN MINN" vinstra megin í stjórnkerfinu.
4. Og svo "Veftré (vefsíður)" þar fyrir neðan.
5. Velur svo "Nýr valmöguleiki" hnappinnn efst vinstra megin
Nýja vefsíðan birtist svo neðst á síðunni.
6. Ýtir svo á nafnið á vefsíðunni.
7. Skrifar hvað hún á að heita (t.d. "Rúllandi Texti") og velur "Vista valmöguleika"
8. Ferð svo aðeins neðar og ýtir á "Breyta efni" hnappinn
9. Ýtir svo á "Kóði" efst uppi vinstra megin á hvíta skjánum., Hægri smellir svo og velur "Paste" (Vista)
10. Ekki gleyma að ýta á "Vista efni vefsíðu"
Núna ætti "Rúllandi Texti " að vera kominn á undir síðuna þína.
og þá lítur það svona út ef hann rúllar Fram og til baka
Og svona út ef hann rúllar Allan hringinn
Leiðbeiningar með myndum : Mynd 2 - Mynd 3 - Mynd 4 - Mynd 5 - Mynd 6 - Mynd 7 - Mynd 8 - Mynd 9 - Mynd 10